In
home,
home decor
Ég fór fyrir tveim vikum síðan í Zöru að leita mér af kápu og ég fékk valkvíða á háu stigi, aldrei séð jafn margar fallegar kápur á sama stað. Tvær af þessum fjórum fengu að koma heim í poka en stundum er gaman að fá að velja sér jólagjafirnar... Mæli með að þið kíkið ef ykkur vantar fallega kápu... Ég splæsti svo í nýja húfu um helgina og núna vantar mér bara nýjan trefil. Þá er ég klár fyrir desember :)
Hérna geti þið skoðað kápurnar aðeins betur:
Dressið hér fyrir ofan er svona smá hugmynd af outfittinum mínum. Á fyrsta jólahlaðborðið fór ég í kjólnum hér fyrir ofan sem er úr Zöru (ég tók hálsmenið af), Vila buxunum mínum, grófum hælum og toppaði outfittið með hvítum blazer úr H&M. Ég er alveg hætt að ganga í blazer en ég keypti mér hvítan frekar síðan blazer í vor og hann er fullkominn fyrir sparileg tilefni (ég fann ekki mynd af honum). Þegar það kom að jólahlaðborði númer tvö var ég slöpp með lærdómsbugun og engan metnað. Þar að leiðandi var skellt sér í sömu fötin nema svartan bol í staðinn fyrir kjólinn. Bolurinn er með fallegum detail-um bæði að framan og aftan svo hann kom vel út. Ég er persónulega ekki mikið fyrir sparikjóla og sokkabuxur en mér fannst ég ekkert minna fín í buxum :) Þar sem ég skellti mér í jólaklippinguna snemma var greiðslan í bæði skiptin sléttað hár og toppurinn fram. Ég skellti síðan dökkri augnförðun á og nude vörum, sem er mjög ólíkt mér því ég læt oftast bara áberandi varalit duga..
Næst á dagskrá er að ákveða Jólafötin 2015 en undanfarin ár hef ég verið mjög róleg þegar það kemur að þeim enda finnst mér best að fara í náttfötin um leið og tækifæri gefst :)
1. Básar síðar dömunærbuxur - 66°norður. Ég keypti mér þessar leggings í fyrra en þær eru úr 100% Merino ull. Þær björguðu mér í gegnum veturinn á Akureyri og ég hlakka til að geta notað þær þegar það fer að kólna aðeins meira.
2. Húfur - Varma. Ég gaf kærastanum mínum svona húfu, dökkbláa, og ég stel henni næstum alla daga. Held ég verði að splæsa mér á eina en get ekki ákveðið lit, gráa eða brúna.
3. Verndarhendur - Vík Prónsdóttir. Uppáhalds trefillinn minn sem ég er búin að ofnota frá því að ég keypti mér hann. Ótrúlega hlýr og passar við allt.
4. Trefill - Varma. Ég rakst á þennan trefill á Varma síðunni og finnst hann mjög simple og flottur. Mögulega ætti ég að skella honum á jólagjafalistann?
5. Heimskauta vettlingar- 66°norður. Ég á tvö pör af þessum vettlingum enda eru þeir í algjöru uppáhaldi.
6. Angora sokkar- Varma. Mér er farið að vanta hlýja sokka fyrir veturinn sem eru ekki bleikir og loðnir. Ég vil ekki hafa þá of þykka svo ég held að þessir væru fullkomnir. Ég þarf að kaupa mér eitt par og þá auðvitað í gráum lit (já ég elska gráan).
Ég er nýfarin að nota vörur frá Essie og myndin hér að ofan sýnir þær fjórar vörur sem ég á.
Essie Chinchilli (77) & Master Plan (78): Voða basic litir svona í kuldanum, burr...
Essie All in one: Undir & yfirlakk sem er það besta sem ég hef prófað hingað til. Naglalakkið helst fáranlega vel á og ég þarf ekki að vera pirruð yfir ljótum nöglum á degi þrjú.
Essie Drying drops: Ég splæsti þessu á mig fyrr í mánuðinum og prófaði það fyrst í gærkvöldi. Ég er snillingur þegar það kemur að því að þurfa að gera eitthvað þegar ég er nýbúin að naglalakka mig sem verður til þess að í 99% tilvika skemmi ég að lágmarki eina nögl. Eru fleiri í þeim pakka? Anyway.. Nokkrir dropar yfir blautt naglalakk og ég held ég hafi beðið í eina mínútu og allt þornað!
Núna hef ég í rauninni enga afsökun fyrir því að vera ódugleg við að naglalakka mig - Naglalakkið helst lengi á & þornar súperfljótt. Er hægt að biðja um eitthvað meira?
Á maður ekki alltaf einhverjar vörur sem maður kaupir aftur og aftur?
1. ONIKA by Nicki Minaj. Klárlega uppáhalds ilmvatnið mitt og lúkkið á flöskunni skemmir ekki fyrir. Ég keypti mér 30ml fyrr á árinu og var að kaupa mér 50ml. Úpps..
2. Lash Sensational by Maybelline. Þessi er alltaf minn go to maskari.. Er núna að prófa nýja maskarann frá Rimmel sem er mjög góður en held hann toppi ekki þennan uppáhalds.
3. Miracle Hair Treatment by Eleven. Lang, lang besta hárvara sem ég hef nokkurn tíma átt. Langar að gráta því brúsinn er alveg að klárast og verð að fara kaupa mér nýja ASAP.
4. Matte Me in Birthday Suit by Sleek. Elska matta liti og þessi er toppurinn; fullkominn litur & formúla. (Fæst á Haustfjörd.is)
Það styttist í að ég fari til Tenerife svo ég tók saman nokkrar yfirhafnir úr tveim af uppáhaldsbúðunum, PULL&BEAR og Bershku. Í fataskápinn hjá mér vantar semsagt nauðsynlega yfirhafnir (já í fleirtölu). Á óskalistanum fyrir veturinn er grá síð kápa (og nokkrir aðrir hlutir en ég er að reyna að hafa sjálfstjórn).
1. MIRACLE HAIR TREATMENT, ELEVEN AUSTRALIA. Nýja uppáhalds hárvaran mín. Áður en ég keypti það nennti ég aldrei að blása á mér hárið nema mikið stæði til en núna geri ég það nokkrum sinnum í viku. Ég set efnið í blautt hárið áður en ég blæs það og voila hárið á mér verður ekki eins og ég sé lukkutröll (sem gerist alltaf ef ég blæs á mér hárið haha). Efnið á semsagt að fara í blautt hárið og á að hafa 11 frábæra kosti fyrir hárið, til dæmis skilja það eftir glansandi, mjúkt og viðráðanlegt, koma í veg fyrir klofna enda, vernda hárið fyrir hitatækjum og sólinni og fleira. Bæði lyktin og áferðin á efninu er æði og ég mæli 110% með þessu efni!
2. SUN KISSED LIGHTENING SPRAY, LEE STAFFORD. Ég keypti mér þetta sprey fyrir sumarið. Það lýsir hárið hægt og rólega og það er hægt að nota það til þess að lýsa allt hárið, fá ombre, strípur eða til að laga rót. Ég spreyja því í blautt hárið, greiði í gegnum það og blæs það svo. Ég er bæði búin að prófa að nota það í allt hárið og svo seinna bara í endana og mér finnst það virka mjög vel! Ég var kannski að ofnota þetta á tímabili til að lýsa dökka hárið á mér en 3-4 skipti ættu að duga til að fá þann árangur sem leitað er eftir. Finnst það þurrka hárið smá upp svo mæli með góðri hárnæringu og olíu í hárið á meðan á meðferð stendur.
3. POKER STRAIGHT FLAT IRON PROTECTION SHINE MIST, LEE STAFFORD. Klárlega besta hitavörn sem ég hef átt. Ég er með þykkt hár og finnst ómögulegt að slétta á mér hárið nema að nota þetta efni. Hárið fær fínan glans af efninu og lyktin er einstaklega góð.
4. CURL IT BABY MOUSSE, GOSH PROFESSIONAL. Eina krulluefnið sem ég hef átt seinasta árið en hef líka keypt það nokkrum sinnum. Nota það mest þegar ég vil fá krullurnar mínar fínar og set það þá í rakt hárið og kreisti músina vel í hárið. Finnst það samt virka lang best ef ég er að nota krulluhárnæringu á undan.
5. DRY SHAMPOO, BATISTE. Ég elska þurrsjampó, finnst þau vera mesta snilld sem til er. Einföld og þæginleg lausn til að laga hárið til þegar það þyrfti helst á hárþvott að halda en maður hefur ekki tíma eða einfaldlega nennir því ekki. Virkar líka vel til að fá smá fyllingu í hárið. Ég á alltaf tvo brúsa af þessu heima, ég fæ einfaldlega ekki nóg.
Það besta við þessar hárvörur er að þær eru allar á fínu verði og fást til dæmis í Hagkaup, fyrir utan Miracle hair cream sem er aðeins selt á hárgreiðslustofum.

1. Hárbursta/greiðu, teygjur & spennur. Auðveldar að koma í veg fyrir BAD hair day.
2. ilmvatn (sem dæmi Justin Bieber ilmvatnið mitt).
3. Varalit & varasalva. Ég er alltaf með 2-3 varaliti í töskunni haha...
4. Almennt snyrtiveski, fyrir utan varalit & varasalva er ég oft líka með snyrtiveskið mitt.
5. Fótasprey til að hressa upp á þreyttar fætur.
6. Góðan svitalyktaeyði, algjört must þegar það er heitt úti.
7. Þurrsjampó er kannski meira í töskunni á verstu hárdögunum. Klárlega uppáhalds hárvaran mín.
Er ég að gleyma einhverju?
- marta kristín

Ég fann nokkrar peysur sem ég þarf frá H&M sem ég sýndi ykkur hér! Þessar flíkur fengu einnig mína athygli svo hér kemur part.II :

H m top
$9.97 - hm.com
Mest af öllu þarf ég samt auðvitað peysuna með kisunum.....
Mjááá...
- marta kristín
$9.97 - hm.com
Mest af öllu þarf ég samt auðvitað peysuna með kisunum.....
Mjááá...
- marta kristín
Æjhhhhh ég elska bara peysur & hettupeysur & derhúfur og og og..

h&m boys by martakristin featuring sweat shirts
ASOS crew neck tee
asos.com
Æjiiiii elsku Asos.... Núna þarf égnauðsynlega 1-2 baseball boli fyrir vorið, andvarp!
- marta kristín
asos.com
Æjiiiii elsku Asos.... Núna þarf ég
- marta kristín